Látum okkur annt um loftið

sem við öndum að okkur

RJ Verkfæðingar selja búnað og mælitæki

sem tryggja hreint og heilsusamlegt loft.

RJ Verkfræðingar bjóða snjallan og orkusparandi tækjabúnað og lausnir fyrir loftræstikerfi og iðnaðarútsog auk mælabúnaðs og skynjara fyrir allan iðnað.

Lausnir sem tryggja hreint og heilsusamlegt loft fyrir fólk og framleiðslu, - loftsíur og lofthreinsibúnað fyrir loftræstar byggingar, stofnanir, sveitafélög, spítala, lyfja- og matvælaiðnað, framleiðslu, skrifstofur og skóla.
Hágæða loftræstibúnað, orkusparandi blásarar og loftræstisamstæður - fyrir byggingar af öllum stærðum allt frá hefðbundnum lausnum fyrir húsnæði og skrifstofur til lausna sem uppfylla ítrustu kröfur.
Mælitæki og lausnir frá Testo - einum virtasta mælaframleiðanda í heimi fyrir mælingar í iðnaði, matvæla- og lyfjaframleiðslu, eftirlit með loftgæðum, stillingar á hita- og loftræstikerfum auk rafmagnsmæla og hitamyndavéla.
Kvarðanir á mælitækjum frá Testo industrial services - sem kvarðar mælibúnað skv ítrustu kröfum.
Gasmæla frá Honeywell - einum virtasta gasmælaframleiðanda í heiminum til að tryggja öryggi fólks við vinnu sína.
Með nánu samstarfi við marga af stærstu framleiðendum heims búa RJ verkfræðingar yfir mikilli sérþekkingu við val á vönduðum búnaði og lausnum. Fyrirtækið hefur í fyrri tíð hannað mörg af stærri loftræstikerfum landsins og býr yfir reynslu við val á vönduðum og orkusparandi búnaði fyrir loftræstikerfi.
Fyrirtækið RJ Verkfræðingar hafa hlotið ýmsar viðurkenningar í gegnum tíðina m.a. frá Lagnafélagi Íslands fyrir:Áræðni og frumkvæði í endurhönnun loftræstikerfis LandakotskirkjuFramkvæmd á Hússtjórnarkerfi Ráðhúss Reykjavíkur
Stofnandi RJ Verkfræðinga var Rafn Jensson vélaverkfræðingur MSc Framkvæmdastjóri er Herdís Björg Rafnsdóttir verkfræðingur MSc.

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo